Starfsemi Neytendasamtakanna óbreytt

Átök hafa verið inn­an sam­tak­anna síðustu mánuði en í byrj­un …
Átök hafa verið inn­an sam­tak­anna síðustu mánuði en í byrj­un maí lýsti stjórn­in yfir van­trausti á for­mann­inn Ólaf Arn­ar­son. mbl.is/​Krist­inn Ingvars­son

„Við erum, stjórnin og starfsfólkið, að vinna að því að rétta af hallann,“ segir Stefán Hrafn Jónsson, varaformaður Neytendasamtakanna, í samtali við mbl.is. Neytendasamtökin settu tilkynningu á vef sinn í gær þar sem fram kemur að starfsemi samtakanna muni halda áfram með óbreyttu sniði. Eru stjórnin og starfsfólk samtakanna nú sögð vinna hörðum höndum að því að rétta af halla í rekstri samtakanna og segist varaformaður bjartsýnn á að það takist. 

Eins og mbl.is hefur greint frá þá sagði stjórn sam­tak­anna upp öllu starfs­fólki í lok síðasta mánaðar í „ljósi aðstæðna“. Þá kom fram að það væri liður í end­ur­skipu­lagn­ingu og end­ur­fjár­mögn­un sam­tak­anna. Í tilkynningu samtakanna að þessu sinni segist stjórnin bjartsýn að unnt verði að endurráða starfsfólk hið fyrsta.

Átök hafa verið inn­an sam­tak­anna síðustu mánuði en í byrj­un maí lýsti stjórn­in yfir van­trausti á for­mann­inn Ólaf Arn­ar­son. Var það mat meiri­hluta stjórn­ar sam­tak­anna að Ólaf­ur hafi ít­rekað leynt stjórn­ina upp­lýs­ing­um og skuld­bundið sam­tök­in efn­um fram­ar.

Stefán Hrafn segir fyrstu skrefin í að laga hallann vera að draga verulega úr útgjöldum. „Svo erum við að leita leiða til að brúa síðasta bilið,“ bætir hann við. Að hans sögn er stjórnin bjartsýn á að það takist. 

Samkvæmt tilkynningunni eru einhverjir starfsmenn í sumarfríi en skrifstofur samtakanna í Reykjavík og á Akureyri eru opnar engu að síður.

Stjórn Neyt­enda­sam­tak­anna hef­ur einnig boðað til fé­lags­fund­ar 17. ág­úst næst­kom­andi. Á fund­in­um verður farið yfir stöðu mála og leitað eft­ir aðstoð og til­lög­um frá fé­lags­mönn­um að því er fram kem­ur. Dagskrá, staðsetning og nánari tímasetning verður auglýst fljótlega. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert