Rólegt yfir Kötlu og Múlakvísl

Frá Múlakvísl í morgun.
Frá Múlakvísl í morgun. mbl.is/Jónas Erlendsson

Það er lítið að frétta af Múlakvísl og Kötlu, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Engir skjálftar mældust í Mýrdalsjökli í nótt og og allt bendir til þess að hlaupið í Múlakvísl sé yfirstaðið að mestu. Verið er að greina myndir sem Landhelgisgæslan tók af sigkötlunum í jöklinum í gær.

Litakóða Kötlu var breytt í gult í gær og þrátt fyrir að hlaupið sé í rénun og skjálftavirkni innan eðlilegra marka hefur Veðurstofan ákveðið að færa litakóðann ekki aftur í grænan fyrr en í fyrsta lagi eftir helgi.

Viðvörunarmælir Veðurstofunnar við Litlu-Hvola, austan Höfðabrekkuafréttar.
Viðvörunarmælir Veðurstofunnar við Litlu-Hvola, austan Höfðabrekkuafréttar. mbl.is/Jónas Erlendsson

Rafleiðnin í ánni stendur nú í rúmum 180 μS/​cm en hún mældist 580 μS/​cm í gærmorgun, rétt áður en hlaupið náði hámarki. Seinnipartinn var hún komin í 330 μS/​cm.

Þar sem árfarvegurinn er breiður og áin dreifð er erfitt að segja til um vatnsmagnið í henni en að sögn vakthafandi sérfræðings hjá Veðurstofu Íslands hafa mælingar á vatnshæðamæli Veðurstofunnar farið lækkandi.

Landhelgisgæslan greindi frá því í tilkynningu sem barst fjölmiðlum í nótt að hún hefði flogið yfir Mýrdalsjökul í gær og myndað sigkatla jökulsins fyrir Veðurstofuna. Unnið er að því að greina myndirnar en fyrsta skrefið er að bera þær saman við GPS-staðsetningar. 

Endanlegar niðurstöður munu ekki liggja fyrir fyrr en á morgun.

Myndir sem Reynir Ragnarsson tók af jöklinum í gærmorgun benda til þess að hlaupið sé ekki að koma úr kötlum sunnamegin í Kötluöskjunni, frekar norðan- og norðaustanmegin.

Lítið rof kom á varnargarðinn við Múlakvísl í gær en Vegagerðin var á vettvangi og greip umsvifalaust til aðgerða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert