Stór hluti miða í ferjuna seldur

Þjóðhátíð í Eyjum fer fram um helgina.
Þjóðhátíð í Eyjum fer fram um helgina. mbl.is

„Ég er oftast talinn bjartsýnn maður, en þetta fer fram úr mínum björtustu vonum,“ segir Gunn­laug­ur Grett­is­son, fram­kvæmda­stjóri Sæ­ferða, um aðsókn í ferj­una Akra­nes. Sala í ferðir ferjunnar til Eyja hófst klukkan 13 í dag, en stór hluti miða er þegar seldur.

Eftir hádegi í dag voru settir í sölu miðar í tólf ferðir til og frá Eyjum yfir Þjóðhátíð. Í hverja ferð komast hundrað manns, og var því alls um að ræða 1200 miða. Þegar hafa um 800 verið seldir og var því ákveðið að bæta við tveimur ferðum. Um 140 miðar í aukaferðirnar tvær hafa þegar selst, en aðeins eru um 45 mínútur frá því miðarnir voru settir í sölu. 

Eim­skip sótti ný­lega til Sam­göngu­stofu um heim­ild til að nota ferj­una Akra­nes til sigl­inga milli lands og Eyja yfir versl­un­ar­manna­helgi en Sam­göng­stofa hafnaði er­ind­inu. Í fram­haldi af þessu kærði Vest­manna­eyja­bær ákvörðun Sam­göngu­stofu til sam­gönguráðuneyt­is­ins.  

Sam­gönguráðuneyti felldi í dag úr gildi ákvörðun Sam­göngu­stofu og fékk ferj­an því heim­ild til að sigla til Eyja yfir Þjóðhátíð. 

Ferj­an fer á nú­ver­andi áætl­un á tveggja tíma fresti. Ferðin með ferj­unni tek­ur 15 mín­út­ur svo áætl­un henn­ar er mjög rúm eins og er. Þeir sem standa fyr­ir söl­unni eru ann­ars veg­ar Eim­skip og hins veg­ar Þjóðhátíð. Miðinn selst á 3.000 krón­ur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert