Allt að verða uppselt frá Eyjum

Ferjan Akranes.
Ferjan Akranes. Ljósmynd/Eimskip-Arnaldur Halldórsson

„Það eru ennþá lausir miðar til Eyja á morgun en það er allt að verða uppselt frá Eyjum á mánudag,“ segir Gunn­laug­ur Grett­is­son, fram­kvæmda­stjóri Sæ­ferða, um aðsókn í ferj­una Akra­nes. Sala í ferðir ferj­unn­ar til Eyja hófst í gær, en stór hluti miða er þegar seld­ur.

Eft­ir há­degi í gær voru sett­ir í sölu miðar í tólf ferðir til og frá Eyj­um yfir Þjóðhátíð. Í hverja ferð kom­ast hundrað manns. Þegar hefur tveimur ferðum verið bætt við og er því alls um að ræða 1.400 miða, en að sögn Gunnlaugs hafa um þúsund miðar verið seldir til þessa.

Þá segir hann að til standi að bæta við ferðum á laugardag og sunnudag, eða tveimur til þremur ferðum hvorn dag.

„Þetta hefur gengið vonum framar og við erum mjög ánægð með móttökurnar. Eiginlega bara í skýjunum,“ segir Gunnlaugur.

Gunnlaugur Grettisson, fram­kvæmda­stjóri Sæ­ferða.
Gunnlaugur Grettisson, fram­kvæmda­stjóri Sæ­ferða. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eim­skip sótti ný­lega til Sam­göngu­stofu um heim­ild til að nota ferj­una Akra­nes til sigl­inga milli lands og Eyja yfir versl­un­ar­manna­helgi en Sam­göng­stofa hafnaði er­ind­inu. Í fram­haldi af þessu kærði Vest­manna­eyja­bær ákvörðun Sam­göngu­stofu til sam­gönguráðuneyt­is­ins.  

Sam­gönguráðuneyti felldi í dag úr gildi ákvörðun Sam­göngu­stofu og fékk ferj­an því heim­ild til að sigla til Eyja yfir Þjóðhátíð. 

Ferj­an fer á nú­ver­andi áætl­un á tveggja tíma fresti. Ferðin með ferj­unni tek­ur 15 mín­út­ur svo áætl­un henn­ar er mjög rúm eins og er. Þeir sem standa fyr­ir söl­unni eru ann­ars veg­ar Eim­skip og hins veg­ar Þjóðhátíð. Miðinn selst á 3.000 krón­ur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert