Ebba Schram ráðin borgarlögmaður

Ebba Schram
Ebba Schram

Ebba Schram hæstaréttarlögmaður hefur verið ráðin borgarlögmaður. Þetta samþykkti borgarráð á fundi sínum í dag.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Ebba hafi frá árinu 2007 starfað sem lögmaður hjá embætti borgarlögmanns, að undanskildum tveimur árum er hún starfaði sem lögmaður á lögmannstofunni LEX . 

Hún hafi frá 2013 gegnt starfi staðgengils borgarlögmanns og hafi rúmlega átta ára reynslu af störfum innan stjórnsýslunnar. Ebba hafi sinnt fjölbreyttum verkefnum sem snert hafi mörg réttarsvið, m.a.  lögfræðilegri ráðgjöf til borgarstjórnar, borgarráðs, fagráða, stjórnenda, starfsmanna og lögfræðinga á fagsviðum borgarinnar.

Ebba hafi þá verið metinn hæfust umsækjenda að teknu tilliti til menntunar og reynslu sem metin var af fyrirliggjandi umsóknargögnum, í starfsviðtölum og með öflun umsagna.

Aðeins tveir sóttu um stöðuna. Ebba og Ástráður Haraldsson Hæstaréttarlögmaður. Ástráður stendur nú í málaferlum við íslenska ríkið út af annarri ráðningu þegar hann var ekki skipaður sem dómari við Landsrétt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert