Gunna Dís og Sóli stjórna Útsvari

Guðrún Dís Emilsdóttir, lengst til hægri, mun stjórna Útsvari ásamt …
Guðrún Dís Emilsdóttir, lengst til hægri, mun stjórna Útsvari ásamt Sólmundi Hólm. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm munu stjórna spurningaþættinum Útsvari þegar þátturinn hefur göngu sína á ný 15. september.

Rúv greinir frá þessu.

Þau munu leysa þau Sigmar Guðmundsson og Þóru Arnórsdóttur af hólmi.

Einhverjar aðrar breytingar verða jafnframt gerðar á þættinum.

Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri sjónvarps, segir í viðtali við Rúv að margir hafi komið til greina sem stjórnendur þáttarins. Niðurstaðan hafi verið sú að Gunna Dís og Sóli, eins og þau eru kölluð, væru hárrétta fólkið í verkefnið.

Sólmundur Hólm.
Sólmundur Hólm. mbl.is/Ómar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert