Magakveisan stafar af nóró-veiru

Niðurstöður sýnatöku áttu ekki að koma fyrr en eftir helgi …
Niðurstöður sýnatöku áttu ekki að koma fyrr en eftir helgi en komu svo í dag. Þær koma ekki á óvart, en einkenni þeirra sýktu bentu öll til þess að um nóló-veiruna hafi verið að ræða. mbl.is/Ragnheiður Davíðsdóttir

Magakveisa skátanna stafar af nóró-veiru. Þetta staðfestir Hermann Sigurðsson, framkvæmdarstjóri BÍS.

Í gærkvöldi kom upp skæð maga­k­veisa í skátabúðunum við Úlfljótsvatn. Í kjölfarið var 181 skáti og 15 starfs­menn búðanna færðir í sóttkví og haf­ast þeir nú við í fjölda­hjálp­ar­stöð sem komið var upp í grunn­skól­an­um í Hvera­gerði. 

Niðurstöður sýnatöku áttu ekki að koma fyrr en eftir helgi en komu svo í dag. Þær koma ekki á óvart, en einkenni þeirra sýktu bentu öll til þess að um nóró-veiruna hafi verið að ræða. 

Samráðshópur kom saman klukkan fjögur til að meta stöðuna og skipuleggja starfið næstu daga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert