Strætó tekur þátt í Gleðigöngunni

Ljósmynd/Antía Eldjárn

Strætó verður þátttakandi í Gleðigöngu Hinsegin daga í ár í fyrsta sinn. Í tilefni þess var útbúinn heilmerktur regnbogastrætisvagn með einkunnarorðunum „Besta leiðin er að fara sínar eigin leiðir“.

Vagninn hefur ekið á götum höfuðborgarsvæðisins og hefur hann vakið mikla athygli, að því er kemur fram í tilkynningu.

Heiða Björg Hilmisdóttir, stjórnarformaður Strætó, segist vera afar stolt af vagninum og hún fagnar því að Strætó skuli vera hluti af Hinsegin dögum.

„Við hjá Strætó fögnum fjölbreytileikanum í samfélaginu og ég er stolt af því að við sýnum það í verki með þátttöku í Hinsegin dögum. Við styðjum baráttu hinsegin fólks fyrir sjálfsögðum mannréttindum og gleðjumst með þeim og landsmönnum öllum yfir áunnum sigrum“ segir Heiða í tilkynningunni, en hún mun ganga við hlið strætisvagnsins í Gleðigöngunni á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert