Út í skurð með hestakerru

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir að ökumaður missti stjórn á bíl sínum á malarvegi við Hraukbæ í Kræklingahlíð, rétt utan við Akureyri, upp úr klukkan tvö í dag.

Bílinn, sem var með hestakerru í eftirdragi, lenti úti í skurði.

Að sögn lögreglunnar á Akureyri voru meiðsli fólksins minniháttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert