Grunaður um íkveikju á Fiskislóð

Maðurinn var handtekinn vegna gruns um íkveikju.
Maðurinn var handtekinn vegna gruns um íkveikju. mbl.is/Eggert

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var tilkynnt um eld í íbúðargámi við Granda rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Lögregla og slökkvilið fóru á vettvang þar sem eldurinn var slökktur.

Maður í annarlegu ástandi var þá handtekinn á svæðinu, grunaður um íkveikju. Var hann vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu, að því er fram kemur í tilkynningu hennar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert