Leituðu ferðamanns á Heklu

Björgunarsveit á hálendinu. Mynd úr safni.
Björgunarsveit á hálendinu. Mynd úr safni. mbl.is/Sigurður Bogi

Björgunarsveitir af Suðurlandi voru boðaðar út klukkan tíu í gærkvöldi ásamt hópum af hálendisvakt í Landmannalaugum, vegna týnds ferðamanns á Heklu.

Maðurinn hafði gengið á Heklu ásamt tveimur félögum sínum fyrr um daginn en orðið viðskila, að því er fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Grennslan eftir honum hafði þá staðið yfir í einhvern tíma en upp úr tíu hófst formleg leit að manninum.

Um ellefuleytið fannst maðurinn á Landvegi vestan Heklu þar sem hann mun hafa verið að húkka far.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert