Líkfundur í Hvítá

Frá leitinni sem stóð yfir að Georgíumanninum skammt frá Brúarhlöðum.
Frá leitinni sem stóð yfir að Georgíumanninum skammt frá Brúarhlöðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í leitarflugi Landhelgisgæslu með björgunarsveitarmönnum Eyvindar á Flúðum í dag fannst lík af karlmanni á austurbakka Hvítár, neðan Brúarhlaða.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Líkið hefur verið flutt til rannsóknar á Rannsóknarstofu Háskólans í réttarmeinafræði, þar sem fram fer krufning á því ásamt því að Kennslanefnd ríkislögreglustjóra mun vinna með réttarmeinafræðingi að því að bera kennsl á það.

Sterkar líkur eru á því að líkið sé af Nika Begadze, sem féll í Hvítá við Gullfoss fyrr í sumar.

Brúarhlöð við Hvítá, neðan við Gullfoss.
Brúarhlöð við Hvítá, neðan við Gullfoss. mbl.is/Sigurður Bogi
Tvær þyrlur Landhelgisgæslu Íslands er þær sveimuðu yfir Gullfossi í …
Tvær þyrlur Landhelgisgæslu Íslands er þær sveimuðu yfir Gullfossi í leit að manninum. mbl.is/Eggert
Frá leitinni í Gullfossi í síðasta mánuði.
Frá leitinni í Gullfossi í síðasta mánuði. Ljósmynd/ Jóhannes Jóhannesson/Landhelgisgæslan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert