Umferðartafir á morgun

Frá vegaframkvæmdum á Hafnarfjarðarvegi.
Frá vegaframkvæmdum á Hafnarfjarðarvegi. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Stefnt er að því að fræsa og malbika hægri akrein á Hafnarfjarðarvegi, frá Hamraborg í Kópavogi, í átt að Fossvogi á morgun.

Akreininni verður lokað og umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá níu í fyrramálið til hálfþrjú um daginn.

Vegagerðin biður vegfarendur um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert