Jeppi út af blautum malarvegi

mbl.is/Hjörtur

Jeppabifreið valt við Þórisvatn á Héraði á fjórða tímanum í dag en sjö voru um borð í honum, fimm fullorðnir og tvö börn.

Fólkið var flutt á heilsugæsluna á Egilsstöðum til aðhlynningar en meiðsl þess eru ekki talin alvarleg. Bifreiðin er hins vegar mjög illa farin.

Tildrög slyssins eru þau að ökumaður jeppabifreiðarinnar missti stjórn á henni á blautum malarveg en mikil úrkoma hefur verið á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert