Gæsluvarðhald yfir Sveini Gesti framlengt

Gæsluvarðhald yfir Sveini Gesti Tryggvasyni hefur verið framlengt til 31. …
Gæsluvarðhald yfir Sveini Gesti Tryggvasyni hefur verið framlengt til 31. ágúst. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi í dag gæsluvarðhald yfir Sveini Gesti Tryggvasyni sem grunaður er að hafa orðið Arnari Jónssyni Aspar að bana í Mosfellsdal. Þetta staðfestir Þorgils Þorgilsson verjandi Sveins í samtali við mbl.is.

Fréttastofa RÚV greindi frá því fyrr í dag að gæsluvarðhald yfir Sveini, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi síðan 8. júní, hafi verið framlengt til 31. ágúst. Þá staðfesti Þorgils að búið sé að kæra úrskurðinn til Hæstaréttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert