Baldvin og Nina fyrst í 10 km hlaupinu

Baldvin Þór Magnússon og Nina Henriette J Lauwaert frá Belgíu …
Baldvin Þór Magnússon og Nina Henriette J Lauwaert frá Belgíu komu fyrst í mark í tíu kílólametra hlaupi Reykjavíkurmaraþons. Ljósmyndir/Eva Björk Ægisdóttir

Sigurvegarar í 10 km hlaupinu í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka eru þau Baldvin Þór Magnússon og Nina Henriette J Lauwaert frá Belgíu.

Fyrstu þrír karlar

  1. Baldvin Þór Magnússon, ISL, 32:50
  2. Joel Aubeso, ESP, 33:06
  3. Lenas Mathis, FRA,33:08

Tími Baldvins er 11. besti tími sem Íslendingur hefur náð í 10 km hlaupi karla og lang besti tími sem Baldvin hefur hlaupið á hér á Íslandi. Annar íslenskur karl í mark var Sigurður Örn Ragnarsson og þriðji Ingvar Hjartarson.

Konur

  1. Nina Henriette J Lauwaert, BEL, 34:43
  2. Kate Hulls, GBR, 35:19
  3. Guðlaug Edda Hannesdóttir, ISL, 36:08

Tími Ninu er 2. besti tími sem náðst hefur í 10 km hlaupi kvenna. Önnur íslenska konan í mark var Arndís Ýr Hafþórsdóttir og þriðja Fríða Rún Þórðardóttir.

Hér getur þú séð úrslit dagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert