Grunaðir um brot á vopnalögum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá menn seint í gærkvöldi grunaða um brot á vopnalögum og fíkniefnalagabrot. Þeir voru látnir lausir að lokinni yfirheyrslu.

Um svipað leyti var maður handtekinn vegna gruns um fíkniefnamisferli. Við leit heima hjá honum fannst töluvert magn fíkniefna. Hann var látinn laus að lokinni skýrslutöku.

Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt, m.a. í verkefnum tengdum ölvun og hávaða í heimahúsum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert