Hlynur og Elín Edda fyrst í hálfu maraþoni

Elín Edda Sigurðardóttir og Hlynur Andrésson koma í mark.
Elín Edda Sigurðardóttir og Hlynur Andrésson koma í mark. Ljósmynd/Eva Björk Ægisdóttir

Hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka streyma í mark í Lækjargötunni. Búið er að krýna sigurvegar í hálfu maraþoni en fyrsti karl í mark var Hlynur Andrésson og Elín Edda Sigurðardóttir var fyrsta kona.

Verðlaunahafar í hálfu maraþoni karla

  1. Hlynur Andrésson, ISL, 1:09:08
  2. James Finlayson, CAN, 1:09:18
  3. Christopher Mahone, USA, 1:15:21

Tími Hlyns er 3. besti tími sem Íslendingur hefur náð í hálfu maraþoni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og persónulegt met hjá honum. Annar Íslendingur í mark var Geir Ómarsson og þriðji Þórólfur Ingi Þórsson.

Verðlaunahafar í hálfu maraþoni kvenna

  1. Elín Edda Sigurðardóttir, ISL,1:21:25
  2. Janna Mitsos, USA, 1:21:55
  3. Heather Mahoney, USA, 1:23:21

Tími Elínar Eddu er 9.besti tími sem náðst hefur í hálfu maraþoni kvenna í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og 2.besti tími íslenskra kvenna í hlaupinu. Einnig persónulegt met hjá Elínu Eddu. Önnur íslensk kona í mark var Rannveig Oddsdóttir og þriðja var Íris Anna Skúladóttir.

Í Menntaskólanum í Reykjavík er ennþá verið að taka á móti skráningum í skemmtiskokkið sem hefst klukkan 12:15. Skráning í Furðufatahlaup Georgs verður í tjaldi í suðurenda Hljómskálagarðsins frá kl.12:30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert