Mótorhjólaslys og reiðhjólaslys með stuttu millibili

Slökkviliðið var kallað út í tvígang í kvöld vegna reiðhjólaslyss …
Slökkviliðið var kallað út í tvígang í kvöld vegna reiðhjólaslyss og mótorhjólaslyss með stuttu millibili. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Slökkviliðið var kallað tvisvar út um klukkan sjö í kvöld, annars vegar vegna mótorhjólaslyss í Boröldu og hins vegar vegna reiðhjólaslyss í Lækjarbotnum ekki langt frá.

Bæði slysin áttu sér stað um klukkan sjö í kvöld og voru einstaklingarnir fluttir á sjúkrahús en ekki er vitað hvort um alvarleg slys er að ræða. Lögregla er á staðnum og rannsakar málin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert