Réttindalausir ökumenn á ferð

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Nokkuð var um að lögreglan á Suðurnesjum hefði afskipti af réttindalausum ökumönnum um helgina. Þeir höfðu ýmist verið sviptir ökuréttindum eða aldrei öðlast þau. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Jafnframt voru nokkrir stöðvaðir vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum vímuefna. Loks voru svo sex kærðir fyrir of hraðan akstur og skráningarnúmer fjarlægð af átta bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert