„Íslenskt lambakjöt“ verndað afurðaheiti

Matvælastofnun hefur borist umsókn um vernd fyrir afurðaheitið „íslenskt lambakjöt“.
Matvælastofnun hefur borist umsókn um vernd fyrir afurðaheitið „íslenskt lambakjöt“. mbl.is/Brynjar Gauti

Markaðsráð kindakjöts í Reykjavík hefur sótt um vernd til Matvælastofnunar fyrir afurðaheitið „íslenskt lambakjöt“ (e. „Icelandic Lamb“). Auglýsir Matvælastofnun hér með andmælafrest vegna þessa til 23. október næstkomandi.

Samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun er um að ræða umsókn um vernd afurðaheitis samkvæmt lögum 130/2014 sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu. Markaðsráð kindakjöts sækir um vernd sem vísar til uppruna sbr. 4. grein laganna en með lögunum er íslenskum framleiðendum gert mögulegt að sækja um sérstaka vernd fyrir afurðir sínar á grundvelli eins eða fleiri fyrrgreindra atriða.

Heimilt er að andmæla afurðarheiti þessu og afurðarlýsingu áður en endanleg ákvörðun verður tekin um skráningu og skal það gert innan tveggja mánaða eða fyrir 23. október 2017. Andmælum skal skilað skriflega til Matvælastofnunar á netfangið mast@mast.is en afurðarlýsingu og ítarefni vegna þessa er að finna hér neðst í fréttinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert