Styttist í fyrstu göngur og réttir

Réttir hefjast á næstunni.
Réttir hefjast á næstunni. mbl.is/Helgi Bjarnason

Fyrstu göngur í Eyjafjarðarsveit verða laugardaginn og sunnudaginn 2. og 3. september og helgina á eftir, 9. og 10. september.   

Aðrar göngur verða 16. til 17. september og 23. og 24. september.

Hrossasmölun verður föstudaginn 6. október og stóðréttir daginn eftir.

Þetta kemur fram á vefsíðu Eyjafjarðarsveitar. Gangnaseðlar verða sendir út á næstunni og birtir á síðunni.

Réttardagar verða einnig haldnir í byrjun september. Fyrstu fjárréttirnar verða í Hraungerðisrétt 2. september og Möðruvallarétt, Þverárrétt og Vatnsendarétt 3. september.  Sunnudaginn 10. september verða réttir í Vallarétt.

Frá Tungnaréttum.
Frá Tungnaréttum. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert