Andlát: Oddur Ólafsson

Oddur Ólafsson.
Oddur Ólafsson.

Oddur Ólafsson blaðamaður lést 19. ágúst síðastliðinn, 84 ára að aldri. Oddur fæddist 28. júlí 1933.

Foreldrar hans voru Ólafur A. Kristjánsson, verkamaður og síðar bæjargjaldkeri í Hafnarfirði, f. 25. júlí 1904, d. 16. janúar 1986, og Sigurborg Oddsóttir, húsmóðir, f. 5. júlí 1908, d. 18. maí 1995.

Eiginkona Odds var Sigríður Ásdís Þórarinsdóttir meinatæknir, f. 18. júlí 1938, d. 11. apríl 2012.

Oddur hóf nám við lýðháskóla í Svíþjóð, Jakobsbergs Folkhögskola í Stokkhólmi, árið 1953 og lauk skólagöngu árið 1954. Sama ár hóf hann nám í ljósmyndun á ljósmyndastofu Sigurðar Guðmundssonar.

Sigurður tók myndir fyrir Þjóðviljann og komst Oddur þannig í tæri við blaðaljósmyndun. Árið 1957 hóf hann störf sem ljósmyndari fyrir Alþýðublaðið og áður en langt um leið hóf hann skrif einnig. Síðar varð blaðamennska hans aðalstarf. Um árabil ljósmyndaði hann einnig fyrir Leikfélag Reykjavíkur í Iðnó.

Um skeið hvarf Oddur frá blaðamennsku og rak ljósmyndastofu en sneri svo aftur upp úr miðjum sjöunda áratugnum, þá sem blaðamaður Tímans. Á Tímanum starfaði hann í um þrjá áratugi. Árið 1986 varð hann aðstoðarritstjóri blaðsins og síðar ritstjórnarfulltrúi þegar dagblaðið Dagur og Tíminn voru sameinuð undir nafninu Dagur Tíminn á árunum 1996 til 1997. Ferli sínum lauk Oddur á DV og starfaði þar til ársins 2000.

Í takt við starf Odds voru helstu áhugamál hans samfélags- og heimsmál auk frétta almennt. Einnig lék hann golf í frístundum og stundaði laxveiðar.

Oddur og Sigríður Ásdís áttu saman fjögur uppkomin börn, Öldu Völu Ásdísardóttur, f. 29. maí 1957, Sigurborgu Oddsdóttur, f. 9. maí 1958, Þórarin Oddsson, f. 8. júní 1963, og Ólaf Oddsson, f. 8. júní 1963.

Oddur og Sigríður Ásdís áttu átta barnabörn, þau Odd Jónas Jónasson, f. 8. ágúst 1977, Sigríði Ásdísi Jónasdóttur, f. 13. október 1980, Ásgerði Ólínu Jónasdóttur, f. 3. júní 1983, Birtu Ísafold Jónasdóttur, f. 29. mars 1997, Þórunni Pálínu Jónsdóttur, f. 26. júní 1978, Andra Svein Jónsson, f. 2. ágúst 1981, Önnu Sigríði Þórðardóttur, f. 11. febrúar 1988, og Hönnu Valgerði Þórðardóttur, f. 29. apríl 1991.

Barnabarnabörn Odds og Sigríðar eru tíu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert