Hótuðu börnum með öxi

mbl.is/Þórður

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var í kvöld kölluð út að Breiðholtsskóla þar sem par í annarlegu ástandi hafði ógnað ungum drengjum með eggvopni. Samkvæmt heimildum mbl.is var um öxi að ræða.

Þegar lögregla kom á vettvang var parið á bak og brott og leit bar ekki árangur. „Þau hurfu út í myrkrið,“ segir Heimir Ríkarðsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hann staðfestir í samtali við mbl.is að parið hafi hótað börnum með eggvopnum.

Samkvæmt heimildum mbl.is reyndi parið að hafa síma þrettán ára drengja af þeim, og hótaði þeim með öxinni. Ekki er vitað hvaða fólk um ræðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert