Í orðum ráðherra felist fyr­ir­heit um kjara­bæt­ur

Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

BHM, Bandalag háskólamanna, fagnar orðum Benedikts Jóhannessonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Benedikt sagði á blaðamannafundi í gær að árangur í ríkisrekstrinum byggði á því að ríkið gæti laðað til sín og haldið í hæft starfsfólk.

Benedikt boðaði til fundarins í tilefni af komandi kjaraviðræðum sautján aðildarfélaga BHM við ríkið. Kjarasamningar félaganna eru lausir eftir að gildistími gerðardóms frá 2015 rann út um síðustu mánaðamót.

Ráðherra sagði að í komandi viðræðum myndi ríkisvaldið leggja áherslu á að hlusta og vinna með viðsemjendum sínum að því sameiginlega markmiði að ríkið geti boðið samkeppnishæf kjör.

BHM fagnar þessum orðum ráðherrans og lítur svo á að í þeim felist fyrirheit um kjarabætur til handa félagsmönnum aðildarfélaganna. Einnig gefa orð ráðherrans von um að í komandi viðræðum verði ítarlega fjallað um ýmsar sérkröfur aðildarfélaganna sem þau hafa lengi beðið eftir að fá ræddar við samningaborðið. Bandalagið leggur áherslu á að samningsréttur aðildarfélaganna verði virtur og að gengið verði til kjaraviðræðna við þau af fullum þunga,“ segir í tilkynningu frá BHM.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert