Tveir fengu 5 milljónir hvor

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Tveir heppnir miðaeigendur fengu 5 milljónir króna hvor í septemberútdrætti Happdrættis Háskóla Íslands. Sex miðaeigendur fengu eina milljón króna og tíu hálfa milljón.

Samtals fengu 3.358 miðaeigendur vinning í útdrættinum og fá samanlagt greiddar 101 milljón króna. 

Potturinn verður fimmfaldur í Milljónaveltunni í október og verða 50 milljónir í pottinum sem einn miðaeigandi gæti fengið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert