Benedikt veitti Hjalta meðmæli

Benedikt Sveinsson.
Benedikt Sveinsson.

Ég skrifaði undir bréfið og hef ekki vitað af málinu síðan, fyrr en það kom til opinberrar umfjöllunar nú í sumar,“ segir Benedikt Sveinsson kaupsýslumaður í yfirlýsingu til fjölmiðla en hann var einn þeirra sem veittu Hjalta Sigurjóni Haukssyni, dæmdum barnaníðingi, meðmæli vegna umsóknar þess síðarnefnda um uppreist æru.

Benedikt, sem er faðir Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra, segir að í ljósi alls sem komið hafi fram að undanförnu vilji hann biðja þá sem eigi um sárt að binda vegna máls Hjalta afsökunar á því að hafa veitt honum aðstoð vegna umsóknarinnar. Hjalti hafi komið með bréfið til hans á síðasta ári tilbúið til undirritunar.

„Hjalti Sigurjón Hauksson var um tíma tengdur kunningjafólki okkar hjóna frá skólaárum. Hann hefur í nokkur skipti leitað aðstoðar hjá mér, fyrst og fremst vegna fjárhagsmála eða í tengslum við atvinnuleit. Engin önnur tengsl hafa verið á milli okkar.“

Benedikt segist ekki hafa rætt bréfið við nokkurn mann, hvorki innan stjórnkerfisins né annars staðar. Þá hafi hann ekki verið spurður frekar út í málið. Allur aðdragandi og umbúnaður málsins hafi verið með þeim hætti að verið væri að ganga frá formsatriði fyrir umsókn til stjórnsýslunnar.

„Ég hef aldrei litið svo á að uppreist æru væri annað en lagalegt úrræði fyrir dæmda brotamenn til að öðlast að nýju tiltekin borgaraleg réttindi. Sá hugur bjó ekki að baki að rétta stöðu Hjalta gagnvart fórnarlambi hans. Hjalta hef ég sagt að horfast í augu við gjörðir sínar og iðrast þeirra.“ Yfirlýsingunni lýkur á þessum orðum:

„Það sem átti hér að vera lítið góðverk við dæmdan mann hefur snúist upp í framhald harmleiks brotaþola. Á því biðst ég enn og aftur afsökunar.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert