Krefjast áframhaldandi framkvæmda við Reykjanesbraut

Reykjanesbraut. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er ósátt við að framkvæmdir við Reykjanesbraut …
Reykjanesbraut. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er ósátt við að framkvæmdir við Reykjanesbraut virðist ekki að finna í fjárlögum næsta árs. mbl.is/Hallur

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar krefst þess að haldið verði áfram með framkvæmdir við Reykjanesbraut. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gærkvöldi og mótmælir bæjarstjórnin því „kröftuglega að Reykjanesbraut virðist hvergi vera að finna í fjárlagafrumvarpi fjármálaráðherra fyrir árið 2018,“ að því er segir í ályktuninni.

Mikil uppsöfnuð þörf sé á verulegum úrbótum við Reykjanesbraut innan Hafnarfjarðar.  Gríðarleg aukning bílaumferðar á Reykjanesbraut valdi mikilli slysahættu og langar raðir af bílum myndist á álagstímum. 

„Mjög brýnt er að auka umferðaröryggi vegfarenda og finna leiðir til lausnar á þeim umferðarvanda sem er á Reykjanesbraut innan Hafnarfjarðar. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ítrekar áskorun sína frá 21. júní sl. á alþingismenn kjördæmisins að tryggja að fjármagn fáist á fjárlögum ársins 2018 og árunum þar á eftir til að ljúka framkvæmdum við Reykjanesbraut innan Hafnarfjarðar,“ segir í bókuninni.

Þannig séu gatnamótin og hringtorgin á kafla frá Kaplakrika að Lækjargötu með hæstu slysatíðni á höfuðborgarsvæðinu, auk þess sem fjölmörg alvarleg slys hafi orðið á einfalda kafla Reykjanesbrautar frá kirkjugarði suður fyrir Straumsvík.

Er þess krafist af stjórnvöldum „að umferðaröryggi sé tryggt á Reykjanesbraut og að íbúar komist með sæmilegu móti til og frá heimilum sínum án þess að þurfa að leggja sig daglega í stórhættu.“ 

Á fundinum var einnig samþykkt að halda verði íbúafund um samgöngumál, með áherslu á Reykjanesbraut. Til fundarins verði boðaðir m.a. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, vegamálastjóri eða fulltrúar hans, þingmenn kjördæmisins og fleiri sem með málið hafa að gera.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert