Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita rúmar 10 milljónir króna til neyðarsjóðs Sameinuðu þjóðanna (Central Emergency Response Fund CERF) vegna skelfilegra afleiðina fellibylsins Irmu sem gekk yfir eyjar Karíbahafsins í síðustu viku.
Alþjóðlegar mannúðarstofnanir, svo sem World Food Program og UNICEF, gera ráð fyrir að sækja fjármagn til CERF-neyðarsjóðsins til þess að veita nauðsynlega mannúðaraðstoð til þeirra svæða sem verst urðu úti í fellibylnum. Tilgangur sjóðsins er að tryggja að neyðar- og mannúðaraðstoð berist fórnarlömbum náttúruhamfara og átaka tímanlega og á sem skilvirkastan hátt