Fordæma illa meðferð á köttum

Kattavinafélagið lýsir hryggð yfir að enn og aftur hafi dýraníðingsmál …
Kattavinafélagið lýsir hryggð yfir að enn og aftur hafi dýraníðingsmál komið upp í Hveragerði. mbl.is/Valdís Þórðardóttir

Kattavinafélagið lýsir hryggð yfir að enn og aftur hafi dýraníðingsmál komið upp í Hveragerði. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að það hafi áður skorað á lögreglustjóra Suðurlands að taka á þessum málum, auk þess sem það hafi sent Mast erindi vegna málsins. 

„Enn og aftur fordæmir Kattavinafélag Íslands illa meðferð á köttum og skorar á þá aðila sem lögsögu hafa í slíkum málum að sýna að þeim standi ekki á sama og gera allt sem mögulegt er til að finna gerendur,“ segir í yfirlýsingu frá Kattavinafélaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert