Stöðvuðu nær 200 sendingar af melatóníni

Brot af þeim sendingum sem stöðvaðar hafa verið í tollinum …
Brot af þeim sendingum sem stöðvaðar hafa verið í tollinum og eru á leið til eyðingar í Sorpeyðingarstöð Suðurnesja. Ljósmynd/Tollstjóri

Tollverðir hafa stöðvað 199 sendingar sem innihéldu svefnlyfið melatónín í tollpósti það sem af er þessu ári. Þar af bárust 88 sendingar á tímabilinu júní-ágúst sl. Langflestar sendinganna með melantóníni hafa borist frá netverslunum í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tollstjóra. 

Melatónín er skilgreint sem lyf hér á landi og því fellur það, svo og fæðubótarefni sem innihalda það, undir lyfjalög. Samkvæmt því er innflutningur bannaður. 

Um mitt árið 2016 tók íslenska tollgæslan þátt í alþjóðlegri aðgerð á vegum INTERPOL og Lyfjastofnunar með aðkomu Europol, Matvælastofnunar o.fl. Í aðgerðinni var lagt hald á  12,2 milljónir eininga af ólöglegum og mögulega lífshættulegum lyfjum og 4.932 vefsíðum sem buðu upp á slíkan varning lokað.

Markmið aðgerðarinnar var að vernda heilsu og öryggi almennings gegn ólöglegri framleiðslu og jafnframt að stöðva slíka framleiðslu. Alþjóðlegar aðgerðir af þessu tagi hafa staðfest að glæpamenn svífast einskis þegar kemur að vörusvikum við framleiðslu og engin tegund varnings er undanskilin, þar með talin lyf og fæðubótarefni að því er fram hefur komið hjá INTERPOL og Europol.“ Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Þá hefur Matvælastofnun varað við kaupum á fæðubótarefnum á netinu.

Melatonin á leið í urðun.
Melatonin á leið í urðun. Ljósmynd/Tollstjóri
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert