Sluppu ómeiddir frá bílveltu

mbl.is/Hjörtur

Enginn slasaðist þegar bíll valt við Lónsá skammt fyrir utan Akureyri í gærkvöldi, að sögn varðstjóra í lögreglunni á Norðurlandi eystra.

Bíllinn hafnaði úti í læk en ökumaðurinn og tveir farþegar sluppu ómeiddir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert