Búist er við stormi (meira en 20 m/s) sunnantil á landinu á morgun. Spáð er mikilli rigningu á Suðausturlandi og sunnanverðum Austfjörðum á morgun, segir í athugasemd veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
„Suðaustan kaldi og rigning eða skúrir í dag, einkum á sunnanverðu landinu, en þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti 7 til 13 stig. Á morgun hvessir af austri með talsverðri rigningu. Spáð er stormi sunnantil og mikilli rigningu á Suðausturlandi og sunnanverðum Austfjörðum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.
Veðurhorfur næstu daga
Næstu daga er útlit fyrir vindasamt og milt veður á landinu.
Víða rigning, þó síst norðanlands.Suðaustan 5-13 m/s og rigning eða skúrir í dag, en úrkomulítið NA-lands. Hiti 7 til 13 stig yfir daginn.
Gengur í austan 15-25 á morgun, hvassast við S-ströndina.
Talsverð rigning og mikil úrkoma á SA-verðu landinu.
Suðaustan 13-20 seint á morgun.
Gengur í austan 18-23 m/s, fyrst S-lands. Talsverð rigning, en mikil úrkoma á SA-verðu landinu. Hiti 8 til 15 stig.
Á sunnudag:
Hvöss suðlæg átt og rigning, en úrkomulítið N-lands. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á NA-landi. Hægari vindur og skúrir um kvöldið.
Á mánudag:
Allhvöss suðaustanátt og fer að rigna á S-verðu landinu, en þurrt norðan heiða. Hiti 8 til 13 stig.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Suðaustanátt með rigningu og mildu veðri, en úrkomulítið N-lands.
Á fimmtudag:
Austlæg átt og víða rigning.