Ný flugnámsbraut hjá Icelandair

Ljósmynd/Icelandair

Icelandair hefur sett af stað flugnámsbraut í samstarfi við Flugakademíu Keilis, Flugskóla Íslands og erlenda flugskóla til þess að styðja áframhaldandi vöxt félagsins og tryggja félaginu hæft starfsfólk til framtíðar.

Í fréttatilkynningu segir að Icelandair muni aðstoða nemendur við fjármögnun námsins, og að þeir nemendur sem standist kröfur Icelandair muni njóta forgangs til starfa hjá félaginu að námi loknu.

Námið verður öllum opið og þess er ekki krafist að umsækjendur hafi þegar hafið flugnám. Gert er ráð fyrir að fyrstu nemendur hefji námið strax í vetur og gætu þeir hafið störf sem flugmenn árið 2019.

„Þessi leið við nám og þjálfun nýrra flugmanna er þekkt meðal alþjóðlegra flugfélaga og við veljum hana til þess að tryggja áframhaldandi vaxtarmöguleika Icelandair,” segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, í tilkynningunni.

„Hér er um að ræða nýja leið að flugmannsstarfi, viðbótarleið við þá kosti sem fyrir eru og hafa gefist vel, sem miðar að því að stækka þann hóp sem vill leggja flugið fyrir sig. Flugið er sífellt mikilvægari stoð í íslensku efnahagslífi og með því að styrkja innviði fluggeirans með þessum hætti bætum við möguleika Íslands á því sviði til framtíðar,” segir Birkir.

Námsbrautin verður kynnt nánar á opnum kynningarfundi á Hilton Reykjavík Nordica kl. 17, miðvikudaginn 27. september.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert