Áreittar og beittar ofbeldi í meðferð

Kristín I. Pálsdóttir, verkefnisstjóri RIKK, rannsóknarstofnunar í jafnréttisfræðum við HÍ.
Kristín I. Pálsdóttir, verkefnisstjóri RIKK, rannsóknarstofnunar í jafnréttisfræðum við HÍ. ljósmynd/RIKK

Rúm 80% kvenna, sem höfðu farið í fíknimeðferð og tóku þátt í könnun um reynslu kvenna af fíknimeðferð, höfðu orðið fyrir kynferðislegri áreitni á fullorðinsárum. Tæp 75% kvenna urðu fyrir kynferðislegu ofbeldi, 88% fyrir andlegu ofbeldi, tæp 56% fyrir líkamlegu ofbeldi og rúm 46% fyrir fjárhagslegu ofbeldi og sama hlutfall hafði orðið fyrir einelti. Þetta kom fram í niðurstöðum rannsóknar á reynslu kvenna af fíknimeðferð á ráðstefnu SÁÁ í dag sem Kristín I. Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, kynnti.

Þátttakendur voru spurðir hvort þeir hefðu orðið fyrir áreitni og ofbeldi í meðferð eða orðið vitni að slíku. Alls 23% sögðust hafa orðið vitni að einelti í meðferðinni, 21% að óhóflegri valdbeitingu starfsfólks, 45% urðu vitni að ófaglegum eða óviðeigandi athugasemdum starfsfólks í meðferðinni og 35% ofbeldi gegn öðrum þátttakanda í meðferðinni, af hendi annarra þátttakenda, og 15% að hótun. Greint er frá helstu niðurstöðum í tilkynningu. 

Þegar spurt var um ofbeldi og áreitni sem konurnar höfðu sjálfar orðið fyrir sögðust 34,6% hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni í meðferð, 12% fyrir kynferðislegu ofbeldi, tæp 14% fyrir einelti og 28% fyrir andlegu ofbeldi. Einnig höfðu 6% orðið fyrir líkamlegu ofbeldi og tæp 4% fyrir fjárhagslegu ofbeldi.

„Einnig var spurt út í mótlæti og áföll í æsku og voru niðurstöður þar ekki síður sláandi. [...] Samkvæmt niðurstöðunum höfðu 55% þátttakenda upplifað andlegt ofbeldi á heimili sínu í æsku, 34% líkamlegt ofbeldi, 51% kynferðislegt ofbeldi, 70% sögðu að skort hefði upp á ást og umhyggju í uppvextinum og 37% sögðust hafa verið vanrækt. Þá voru 35% svarenda skilnaðarbörn, og 20% höfðu upplifað líkamlegt ofbeldi gegn móður. Í 65% tilfella var einhver á heimili með áfengis- eða fíknivanda og í 60% tilfella var einhver þunglyndur, andlega veikur eða aðili sem reyndi að fyrirfara sér á heimilinu. Í rétt tæplega 14% tilfella hafi heimilismeðlimur farið í fangelsi.“ Þetta kemur jafnframt fram í tilkynningu. 

Flestar konur vildu sjá einstaklingsmiðaða meðferð í auknum mæli, að meira væri unnið með áfallasögu, sögðu að kynjaskipting væri mjög mikilvæg. Þær töldu einnig þörf á betur menntuðu starfsfólki á meðferðarstöðunum. 

Markmið rannsóknarinnar er að fá innsýn í reynslu kvenna af meðferðarúrræðum og upplýsingar um líðan þeirra og öryggi í meðferð. Enn fremur að skoða sögu kvennanna með sérstöku tilliti til erfiðrar upplifunar í æsku og hvort að þær eigi sögu um ofbeldi í nánum samböndum. 

Spurningalisti var sendur á 305 félaga í Rótinni og bárust 110 svör og höfðu þar af 96 konur átt við fíknivanda að stríða. Alls hafa 88,7% þátttakendanna leitað sér aðstoðar vegna fíknivanda. Stærsti hluti hópsins, 38,2%, hefur aðeins leitað sér aðstoðar einu sinni en 15,7% hafa farið ítrekað í meðferð eða frá fjórum til tíu sinnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert