Veitti höfuðhögg með slökkvitæki

Frá lögregluaðgerðum á Hagamel.
Frá lögregluaðgerðum á Hagamel. mbl.is/Golli

Maðurinn sem hefur verið í haldi lögreglunnar, grunaður um að hafa ráðist á Sanitu Brauna í Vesturbænum 21. september, hefur játað að hafa veitt henni höfuðhögg með slökkvitæki.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að rannsókn málsins miði vel og verður málið sent héraðssaksóknara, sem fer með ákæruvald í málinu, að rannsókn lokinni.

Sanita Brauna.
Sanita Brauna.

Maðurinn sem er í haldi var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald 22. september á grundvelli rannsóknarhagsmuna og síðan hinn 29. september í fjögurra vikna langt gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert