Bjarni ræddi við Ségolène Royal

Segolene Royal er stödd hér á landi til að ræða …
Segolene Royal er stödd hér á landi til að ræða um málefni norðurslóða. mbl.is/afp

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, átti fund í dag með Ségolène Royal sendiherra Frakklands í málefnum norður- og suðurpóls. Hún er stödd hér á landi vegna ráðstefnunnar Arctic circle sem fer fram í Hörpu á morgun og um helgina og í tilefni af Hringborði norðurslóða (Arctic Circle Assembly). 

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu kemur fram að Bjarni og Royal hafi rætt um góð samskipti og samstarf Frakklands og Íslands, málefni norðurslóða, umhverfis- og loftslagsmál, auk efnahagsmála. Royal er fyrrum loftslags-og umhverfisráðherra Frakklands.

Þá ávarpaði forsætisráðherra hádegisverð í dag á vegum Munic Security Conference (MSC) um öryggi á norðurslóðum. MSC stóð fyrir hringborðsumræðum í Höfða í dag um öryggi á norðurslóðum, í tengslum við árlegt Hringborð norðurslóða sem hefst í Hörpu á morgun 13. október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert