Lóðum úthlutað fyrir 530 íbúðir

Lóðin við Stakkahlíð.
Lóðin við Stakkahlíð. Mynd/Reykjavíkurborg

Á fundi borgarráðs í dag var samþykkt úthlutun fyrir 530 íbúðir og hefur þá í heild verið úthlutað lóðum fyrir 1.435 íbúðir í ár.  Lóðirnar sem úthlutað var í dag eru Stakkahlíð og Nauthólsvegur.

Við Stakkahlíð fá Byggingarfélag námsmanna byggingarrétt á 100 íbúðum fyrir stúdenta og Samtök eldri borgara byggingarrétt fyrir 60 íbúðir fyrir aldraða. Á Nauthólsvegi mun Háskólinn í Reykjavík byggja 370 íbúðir fyrir stúdenta.

Lóð við Nauthólsveg.
Lóð við Nauthólsveg. Mynd/Reykjavíkurborg

Hér má sjá lista yfir úthlutun byggingarréttar á þessu ári:

  • Stakkahlíð: Byggingarfélag námsmanna  - 100 íbúðir fyrir stúdenta
  • Stakkahlíð: Samtök aldraðra - 60 íbúðir fyrir aldraða
  • Nauthólsvegur:  Háskólinn í Reykjavík - 370 íbúðir fyrir stúdenta
  • Reynisvatnsás: Einstaklingar -  22 lóðir fyrir einbýlishús
  • Hallgerðargata: Brynja - 37 íbúðir
  • Hallgerðargata: Bjarg - 63 íbúðir
  • Hraunbær 103 A: Dverghamrar - 60 íbúðir
  • Keilugrandi 1: Búseti - 78 íbúðir
  • Móavegur 2 – 4:  Bjarg - 156 íbúðir
  • Nýlendugata 34: Reir ehf. - 7 íbúðir
  • Urðarbrunnur 130 – 134: Bjarg - 44 íbúðir
  • Urðarbrunnur 33 – 35:  Bjarg - 32 íbúðir
  • Vesturbugt: Vesturbugt ehf. - 176 íbúðir
  • Eggertsgata: Félagsstofnun - Stúdenta - 230 íbúðir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert