Varað við skriðuföllum

Veðurstofa Íslands

Varað er við hættu á vatnavöxtum og skriðuföllum á  Ströndum, Siglufirði og austur á Skjálfanda. Útlit er fyrir mikið vatnsveður á mið-Norðurlandi fram eftir degi og á norðanverðum Ströndum. Þetta kemur fram í viðvörun á vef Veðurstofu Íslands.

„Fremur umhleypingasamt verður fram á helgina, lægðirnar koma ein af annarri, með allhvassan eða hvassan vind og einnig rignir duglega á köflum samfara þeim. Á milli lægir og léttir til og þá getur kólnar hratt og líkur á næturfrosti eru þó nokkrar ef fer saman lítill vindur og bjartviðri.

Annars er fremur milt miðað við árstíma og finnst áreiðanlega mörgum undarlegt að það rigni í norðanáttum um miðjan október en bæði er sjórinn frekar hlýr og einnig draga lægðirnar með sé hlýindi langt norður í höf sem koma síðan til baka í norðlægu áttunum. Þó getur komið slydda og krapi á fjallvegi norðan til,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spáð er norðlægri átt, 8-18 m/s, hvassast á Vestfjörðum. Rigning fyrir norðan, talsverð eða mikil rigning á annesjum, en úrkomulítið S-til. Heldur hægari síðdegis og dregur úr úrkomu og víða bjart sunnan til. Vaxandi norðaustanátt með rigningu S-lands og austan í kvöld.
Norðan og síðar norðvestan 10-18 á morgun. Rigning um landið N-vert en úrkomulítið syðra. Hiti víða 3 til 8 stig.

Á föstudag:
Norðan 10-18 m/s NV-til á landinu, en NV-læg átt, 5-13 annars staðar. Rigning fyrir norðan og einnig SA-lands um morguninn, en úrkomulítið SV-lands. Hiti 5 til 10 stig að deginum, hlýjast syðst. 

Á laugardag:
Vestan og norðvestan 8-18 m/s, hvassast við N-ströndina. Rigning eða slydda um landið norðanvert, en bjart með köflum sunnan til. Lægir og léttir til V-til seinnipartinn, en A-til um kvöldið. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast á Suðausturlandi. 

Á sunnudag og mánudag:
Hæg breytileg átt, en lengst af V 5-10 við NA-ströndina. Bjart með köflum, en lítilsháttar skúrir eða slydduél vestan- og norðan til. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn, en líkur á næturfrosti, einkum inn til landsins. 

Á þriðjudag:
Líkur á hæglætisveðri, víða bjartviðri og þurrt en fremur svalt. 

Á miðvikudag:
Útlit fyrir austanátt. Skýjað SA-til, en bjartviðri í öðrum landshlutum. Hiti breytist lítið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert