Telma áreitt af þremur mönnum

Telma Tómasson.
Telma Tómasson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Fjölmiðlakonan Telma Tómasson segir frá þremur mönnum, sem áreittu hana kynferðislega þegar hún var ung stúlka, í grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag.

Hún segir virtan kennara og vin hafa ítrekað leitað á hana þegar hún var 17 eða 18 ára gömul, bónda hafa skriðið upp í rúm hjá henni í skjóli nætur þegar hún var 15 ára gömul og ókunnugan mann á miðjum aldri hafa króað hana af í boði.

Tilefni greinar Telmu er sá fjöldi leikkvenna sem hefur að undanförnu stigið fram og sakað kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein kynferðislega áreitni og kynferðislegt ofbeldi.

Telma segir ávirðingar leikkvennanna í Hollywood enga nýlundu og að yfirlýsingar af svipuðu toga séu æ algengari á síðum fjöl- og samfélagsmiðla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert