Með fíkniefni á Langholtsvegi

AFP

Lögreglan stöðvaði bifreið við Langholtsveg um hálftvö í nótt og fann lögreglumaður sterka fíkniefnalykt koma úr bifreiðinni. Ökumaðurinn afhenti þá lögreglunni fíkniefni sem hann var með á sér. 

Um svipað leyti handtók lögreglan mann í annarlegu ástandi við Vatnsmýrarveg. Maðurinn er grunaður um eignaspjöll, brot á lögreglusamþykkt og ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni.  Maðurinn er vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert