Miklabraut mánuði á eftir áætlun

Frá framkvæmdum við Miklubraut.
Frá framkvæmdum við Miklubraut. mbl.is/Kristinn Magnússon

Framkvæmdir á Miklubraut við Klambratún í Reykjavík eru heldur á eftir upphaflegri áætlun að sögn Þórs Gunnarssonar verkefnastjóra.

Upphaflega var áætlað að framkvæmdum yrði lokið 15. október en Þór segir að vegna smávægilegra breytinga tefjist þær um mánuð.

Næst á að malbika strætisvagnaakrein og þá verður gatan klár en í gær var verið að ganga frá kantinum upp að veggnum sunnanmegin.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert