Árekstur á Arnarneshæð

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Árekstur varð á Arnarneshæðinni í Garðarbæ nú á níunda tímanum í kvöld þegar tveir fólksbílar skullu þar saman.

Að sögn slökkviliðsins á höfðuborgarsvæðinu þá verður farið með tvo í sjúkrabíl til frekari aðhlynningar á Landspítalans. Ekki er þó talið að meiðsl þeirra séu alvarleg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert