Árekstur.is óskar eftir vitnum að hörðum árekstri sem varð rétt fyrir klukkan 09:00 á Reykjanesbraut í Hafnarfirði.
Sérstaklega er leitað að litlum hvítum sendiferðabíl sem ók þar um á þessum tíma, segir í tilkynningu frá Árekstur.is. Vitni eru beðin um að hafa samband við Árekstur.is í síma 578-9090 eða með tölvupósti á arekstur@arekstur.is.