Ályktun LÍ byggist á misskilningi

Birgir Jakobsson landlæknir.
Birgir Jakobsson landlæknir. mbl.is/Golli

Birgir Jakobsson landlæknir segir að það sé fjarri lagi að hann hafi sagt að að læknar í hlutastörfum sinni ekki sjúklingum sínum af heilum hug. Ályktun Læknafélag Íslands um að landlæknir hafi viðhaft órökstudd ummæli byggist því á misskilningi.

Þetta kemur fram á vef landlæknisembættisins.

Þar segir að á aðalfundi Læknafélags Íslands 20. október sl. hafi verið samþykkt ályktun um að á hádegisfundi BSRB 9. október hafi landlæknir viðhaft órökstudd ummæli þess efnis að læknar í hlutastarfi á Landspítalanum og á stofum úti í bæ starfi ekki á spítalanum af heilum hug. Með þessum orðum hafi landlæknir vegið að starfsheiðri yfir 200 lækna og sakað þá um óheilindi gagnvart sjúklingum og vinnuveitanda.

„Ályktun LÍ er á misskilningi byggð þar sem ekki er gerður greinarmunur á túlkun blaðamanns og orðum landlæknis. Það er fjarri lagi að landlæknir hafi sagt að læknar í hlutastörfum sinni ekki sjúklingum sínum af heilum hug. Má í því sambandi benda á úttektarskýrslur embættisins þar sem að jafnaði er getið um að á spítalanum starfi mjög hæft starfsfólk sem vinni einhuga að umönnun og meðferð sjúklinga,“ segir í tilkynningunni á vef landlæknisembættisins.

Þar segir ennfremur að landlæknir hafi ítrekað talað um nauðsynleg forgangsverkefni í heilbrigðiskerfinu sem geti stuðlað að gæðum og skilvirkni þess. Meðal þeirra sé efling sérfræðimönnunar á Landspítalanum og fækkun hlutastarfa þar. Forstjóri Landspítalans hafi einnig bent á að það sé almennt mikilvægt að sérfræðilæknar spítalans séu í fullu starfi eða því sem næst en 44% þeirra séu í hlutastarfi um þessar mundir.

„Það er enn skoðun landlæknis að hlutastörf lækna af þeirri stærðargráðu sem um ræðir á LSH skapi vandamál við skipulagningu þjónustunnar og að starfsfólk í hlutastörfum, með fleiri en einn vinnuveitenda, eigi erfitt um vik að setja hagsmunamál aðalvinnuveitanda í forgang,“ segir ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert