Í varðhaldi í fjórar vikur

Frá aðgerðum lögreglu við Hagamel í lok september.
Frá aðgerðum lögreglu við Hagamel í lok september. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Gæsluvarðhald yfir manninum sem grunaður er um að hafa orðið konunni Sanitu Braune að bana á Hagamel 21. september var framlengt um fjórar vikur í dag. 

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti þetta í samtali við mbl.is. Maðurinn var leiddur fyrir dómara fyrr í dag og verður í gæsluvarðhaldi til 24. nóvember.

Farið var fram á áframhaldandi varðhald á grundvelli almannahagsmuna. 

At­b­urðarás­in ligg­ur fyr­ir að mestu leyti. Hinn grunaði hefur játað að hafa slegið til Sanitu og veitt henni höfuðhögg með slökkvitæki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert