Þrjú létust eftir að bíll fór í sjóinn

mbl.is

Maður, kona og barn, sem voru flutt á Sjúkrahús Akureyrar fyrr í kvöld eftir að bifreið þeirra fór í sjóinn við höfnina á Árskógssandi, hafa verið úrskurðuð látin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.

Ekki er hægt að greina frá nöfnum hinna látnu að svo stöddu. Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að sinni, að því er kemur fram á facebooksíðu lögreglunnar.

Bíllinn fór fram af bryggj­unni á Árskógs­sandi um hálfsexleytið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert