Harmar aðkomu sína að greininni

Óskar Einarsson, lungnalæknir á Landspítalanum, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna skýrslu nefndar Landspítala (LSH) og Háskóla Íslands (HÍ) um svonefnt „plastbarkamál“ þar sem fram kemur meðal annars að hann hafi ekki komið að þeirri ákvörðun að leitað var til Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð varðandi annað álit á meðferðarrúrræði fyrir Erítreumanninn Andemariam Teklesenbet Beyene.

„Ég tók ekki þátt í undirbúningi eða framkvæmd aðgerðarinnar. Mér var ekki kunnugt um að læknar KS væru að íhuga plastbarkaígræðslu. Ég heyrði hennar fyrst getið eftir á þegar sjúklingur var fluttur á LSH til eftirmeðferðar,“ segir Óskar.

Frétt mbl.is: Blekktur til að breyta tilvísun

„Mér var þá falið að sinna læknismeðferð sjúklings við innlögn á lungnadeild LSH. Ég kom hvergi að þeirri ákvörðun en sá enga ástæðu til þess að víkjast undan þeim starfsskyldum. Ég nálgaðist það verkefni sem læknisverk og leit ekki á mig sem þátttakanda í vísindatilraun, enda er ráðning mín við LSH af læknisfræðilegum en ekki vísindalegum toga. Ég hafði á þessum tíma enga ástæðu til þess að draga í efa óskir skurðteymis KS um upplýsingar varðandi ástand sjúklings, þar með talið óskir um sýni frá sjúkling.“

Óskar segist harma að hafa ekki borið gæfu til þess að neita að gerast meðhöfundur að grein í læknatímaritun Lancet þegar ekki hafi verið orðið við ábendingum um breytt orðalag greinarinnar. „Á þessum tíma hafði ég engar forsendur til þess að efast um heilindi greinarhöfunda og annarra sem stóðu að aðgerðinni og því ekki kunnugt um þær vísvitandi blekkingar og falsanir sem komið hafa í ljós m.a. varðandi leyfi þar til bærra aðila í Svíþjóð. Í ársbyrjun 2017 sendi ég ritstjóra Lancet erindi um að ég yrði fjarlægður sem meðhöfundur greinarinnar.“

Óskar segist ennfremur aldrei hafa haldið erindi eða verið höfundur á öðrum greinum sem fjalla um efnið. „Ég var hvorki upplýstur um né viðstaddur málþing Háskóla Íslands vorið 2012 um stofnfrumur í skurðlækningum, í tilefni þess að ár var liðið frá umræddri plastbarkaígræðslu. [...] Ég hef aldrei hitt eða rætt við hinn umdeilda skurðlækni Macchiarini, né nokkurn úr hans rannsóknar/aðgerðarteymi annan en Tómas Guðbjartsson. Ég mun nú gefa mér tíma til að lesa skýrslu nefndarinnar og í framhaldinu ráðfæra mig við yfirmenn mína á LSH um efni hennar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert