Banna sandblásturssand með asbesti

Colad – AirTec Blasting Materia-3010 er sandblásturssandur sem Vinnueftirlitið hefur …
Colad – AirTec Blasting Materia-3010 er sandblásturssandur sem Vinnueftirlitið hefur bannað notkun á. Mynd/Vinnueftirlitið

Vinnueftirlitið hefur bannað notkun á sandblásturssandi sem kallast Colad – AirTec Blasting Materia-3010 og Eurogrit aluminium silicate blasting grit sem inniheldur snefilmagn af asbesti (krýsótíli) en sandurinn er notaður til sandblásturs málma í ýmsum iðnaði.

Í tilkynningu á vef eftirlitsins kemur fram að Colad-sandurinn sé fluttur inn af Poulsen ehf. frá hollenska fyrirtækinu EMM sem kaupir hann af framleiðandanum Sibelco, sem einnig er þekktur undir nafninu Eurogrit, en Verkvík-Sandtak flytur inn sams konar sand beint frá Sibelco til eigin nota.

Poulsen, sem hefur selt sandinn til fjölda fyrirtækja og annarra notenda, hefur stöðvað sölu á sandinum og beðið kaupendur að endursenda allar birgðir af honum. Varan er seld í 25 kg plastfötum. 

Vinnueftirlitið leggur áherslu á að þeir sem notað hafa sandinn, meðhöndlað hann eða verið í nálægð hans við notkun eru ekki í alvarlegri heilsufarshættu þar sem magn asbestsins er mjög lítið en mælingar á sandi sem framleiddur var á milli júní 2016 og júní 2017 sýna að styrkur asbests var á milli 1,6 og 4,4 mg/kg í þurrefni (0,00016 til 0,00044%) en sem varúðarráðstöfun bannar Vinnueftirlitið notkun hans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert