Engin niðurstaða á kjarafundi flugmanna

Samn­ing­ur Fé­lags ís­lenskra at­vinnuflug­manna við Icelanda­ir rann út 30. sept­em­ber.
Samn­ing­ur Fé­lags ís­lenskra at­vinnuflug­manna við Icelanda­ir rann út 30. sept­em­ber. mbl.is/Árni Sæberg

Engin niðurstaða náðist á kjarafundi Fé­lags ís­lenskra at­vinnuflug­manna og Icelanda­ir sem fram fór hjá rík­is­sátta­semj­ara í dag.

„Þetta er einn fundur af fleirum sem standa yfir. Það eru lausir kjarasamningar og það er verið að reyna að semja,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við mbl.is.

Samn­ing­ur Fé­lags ís­lenskra at­vinnuflug­manna við Icelanda­ir rann út 30. sept­em­ber, en deil­unni var vísað til rík­is­sátta­semj­ara 26. sept­em­ber og var fyrsti sátta­fund­ur­ hald­inn 2. októ­ber. Fundurinn í dag var fjórði fund­ur samn­ingsaðila.

Guðjón segir fundinn hafa gengið ágætlega fyrir sig. Engin niðurstaða sé hins vegar komin í samningaviðræðurnar. „Það er í sjálfu sér ekkert að frétta af viðræðunum að öðru leyti nema að þær standa yfir og í þeim er eðlilegur gangur.“

Alls eru á milli 800 til 900 virk­ir fé­lag­ar í Fé­lagi ís­lenskra at­vinnuflug­manna. Þar af störfuðu 530 hjá Icelanda­ir í sum­ar.

Búast má við því að rík­is­sátta­semj­ari muni boða til næsta fund­ar inn­an tveggja vikna, líkt og lög kveða á um, nema eitt­hvað komi upp hjá samn­ingsaðilum sem þyki gefa ástæðu til að taka upp þráðinn að nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert